5.11.07
22.10.07
17.10.07
Thorsten Henn - bráðlega
Thorsten Henn kemur í heimsókn til okkar bráðlega!!
Hér er svo síðan hans Thorstens
...einnig - Kjartan Már talar við okkur nk. þriðjudag (23. okt)

9.10.07
þróun...
mín elskulegu...
mig langaði bara að skella þessari mynd hér inn frá honum Olgeiri. Olgeir er gott dæmi um mann sem vinnur sleitulaust að list sinni - sama hvað og heldur áfram að þróa sinn stíl.
Góð hvatning fyrir okkur hin að láta ekki deigan síga þrátt fyrir smá mótbyr... við skulum horfa bjartsýn fram á vegin, húsnæðismálum okkar verður reddað einhvernvegin og næsta sýning okkar verður GEGGJUÐ!!
R

4.10.07
Einar Falur & þjóðminjasafnið
Jæja... fyrirlesturinn hjá Einari sl. þriðjudag var hreint út sagt frábær - leitt fyrir þá sem misstu af ;)
....EN! Einar Falur verður með leiðsögn á sýningu Mary Ellen Mark í Þjóðminjasafninu sunnudaginn 7. október kl. 15.00!
Ég mæli hiklaust með að þeir sem misstu af Einari sl. þriðjudag noti tækifærið og hitti hann nk. sunnudag og njóti leiðsagnar atvinnuljósmyndara um ljósmyndasýningu annars atvinnuljósmyndara ;)
Svo væri kannski sniðugt að hittast á Kaffitárinu í Þjóðminjasafninu kl. 14 og fá sér snarl fyrir sýningu... þeir mæta sem geta :)

30.9.07
Einar Falur
Jæja... komið að því - Einar Falur ætlar að taka á móti okkur þriðjudaginn 2. október kl. 20. Við ætlum að hitta hann á Listasafninu í Duushúsum...
vinsamlegast verið stundvís ;)
vinsamlegast verið stundvís ;)
25.9.07
fræðsla fyrir SpKef :)
Þriðjudaginn 25. september verður Ljósop með smá námskeið fyrir starfsmenn Sparisjóðsins. Allir meðlimir félagsins eru hvattir til að koma og miðla sinni reynslu og allra helst að koma með myndir líka - alltaf skemmtilegra ;)
Námskeiðið er hugsað sem þakklætisvottur fyrir allan þann stuðning sem Sparisjóðurinn hefur veitt okkur!

24.9.07
17.9.07
dæmi um svarthvíta vinnslu
Stal þessu af þræði á lmk.is en gerði nýja mynd...
Sá sem svarar heitir Andri og hér er flickr síðan hans:

"Já, þetta er nú svosem ekkert merkilegt og kannski ég skrifi tutorial einhvern tímann þegar ég nenni. En ég set myndirnar mínar venjulega í s/h í Lightroom (en það er hægt að gera það í Photoshop líka, Lightroom er bara hraðvirkara). Það sem ég geri er að ég skoða litmyndina vel áður en ég breyti henni í svarthvítt og athuga alveg sérstaklega hvaða litur er á hverju svæði á myndinni. Síðan breyti ég semsagt í svarthvítt og dreg til lita-sliderana til að dekkja eða lýsa hvern lit fyrir sig. Til dæmis er klassískt að hafa bláan himinn dökkan með fallegum hvítum skýjum og þá dregur maður semsagt niður í blue og cyan og hækkar í rauða og appelsínugula í staðinn. Húðlitir eiga hinsvegar oft að vera ljósir og þá hækkar maður í rauða litnum. Og stundum vill maður hafa græna grasið ljóst og stundum dökkt, allt eftir myndinni og þá dregur maður semsagt niður eða upp í græna litnum. Voða einfalt. Síðan fiffar maður Exposure, Contrast og allt það þar til maður er ánægður (ágætt að stilla Exposure fyrst). Þetta er svosem einföld tækni en maður þarf aðeins að æfa sig auðvitað. Reyndar er s/h-myndin frá Kulusuk miklu meira unnin en hinar s/h-myndirnar eru í grunninn unnar svona. (Gallinn við þessa aðferð er reyndar að ef maður passar sig ekki fær maður leiðinda suð í myndirnar en trikkið er oft að setja hliðarliti (t.d. oft fjólubláan þegar maður er að draga niður í bláa litnum) á svipað level og litina sem maður er að breyta.) En aðalatriðið er semsagt að skoða upprunalegu litmyndina mjög vel áður en maður fer út í að breyta henni í svarthvítt - oft flott að svissa á milli lits og s/h til að rifja upp litinn á ákveðnum svæðum."

4.9.07
28.8.07
Ljósanætursýningin 2007
Verið hjartanlega velkomin á 2. ljósanætursýningu Ljósops. Í þetta skiptið sýna 22 félagar og gerir það þessa sýningu að stærstu samsýningu Ljósops hingað til. Við munum opna sýninguna fimmtudaginn 30. ágúst kl. 19 og verður hún opin til 22 þann daginn. Föstudag til sunnudags verður opnunartíminn frá 14-22.
13.6.07
8.6.07
f. tækninörd
Ég fékk þennan skemmtilega póst frá Steinþóri um daginn...
Hæ hæ Rutta í Koti
Ég rakst á þennan link sem tækninördinu mér fannst skemmtilegur. Fjallar um það hvernig autofocusinn í vélunum okkar virkar. Fyrir ofurnörd og alla sem vilja skilja af hverju aldrei er neitt í fókus er þetta góð lesning. Þú kemur þessu kannski á framfæri við félagsmenn.
howstuffworks.com
Þetta líkar mér - verið þið hin líka endilega dugleg við að senda mér einhverjar svona skemmtiegar upplýsingar sem ég get þá sett hér á bloggið okkar.

5.6.07
næsti fundur...
...verður 12. júní í félagsbíóinu kl. 20.
Hér fylgir með dásamleg mynd frá Steinþóri - en það er augljóst að félagsmenn eru glaðir yfir því að vera búnir að endurheimta stúdíóaðstöðuna!
ath þó - enn er slatti eftir af dóti frá sjálfstæðisflokknum í fbíóinu og nauðsynlegt er að við göngum vel um það - þeir taka þetta fljótlega og þrífa þá vonandi pleisið í leiðinni.

29.5.07
ferð til Sollu í Nýmynd (...fundur?)
Jæja...
ekki verður beinlínis fundur þann 29. heldur ferð til Sollu í Nýmynd eins og áður hefur komið fram.
Þeir sem geta mætt 19:30 geta hist í félagsbíóinu (sem við höfum endurheimt húrra húrra) og haldið þaðan til Sollu. Þeir sem ekki geta mætt fyrr en kl. 20 mæta bara beint til Sollu.
Vonandi koma sem flestir!

23.5.07
14.5.07
Fundur og gönguferð
Jæja... eftir fjörið um helgina skulum við róa okkur niður með léttum fundi á morgun (þann 15.) og skella okkur svo í gönguferð á uppstigningardag með Reyni.
Fundurinn verður á venjulegum fundartíma - kl. 20 - í félagsbíóinu.
Reynir mun leiða gönguferðina - mæting er kl. 10 fyrir utan félagsbíó og þaðan verður haldið upp að Höskuldarvöllum. Þaðan ætlum við að ganga yfir garðinn að Djúpavatni.
…og svo maður segi við ykkur eins og krakkana…
komið klædd eftir veðri, vel skóuð, með nesti eins og ykkur sýnist …og ekki gleyma myndavélinni!
R
4.5.07
næsti fundur...
verður 8. maí kl. 20 á kaffistofu Reynis Ó. Gott væri ef að þeir sem ætla að vera með á sýningunni um tómstundahelgina væru búnir að ákveða sig þá!
...og svo ein geggjuð mynd frá Davíð... bara svona til að deila þessu með ykkur!
R
(fundarboð í tölvupósti berast síðar!)

30.4.07
fundur 1. maí
Kæru félagar... ekki gleyma fundinum á morgun, 1. maí. Fundurinn verður haldinn hjá Reyni Ólafs - mæting kl. 20! Þarna ættum við að fá meira næði en á kaffi Duus og umræður varðandi nk. sýningu væntanlega endurteknar og viðbætur við þær umræður vel þegnar.
Einnig eru önnur mál velkomin - ég minni á hugmyndina að ferðanefnd, þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í ferðanefnd með Reyni endilega bjóðið ykkur fram og/eða hafið samband.
x
R
Læt fylgja með eina afburðafallega mynd frá Kristjáni, sem hæfir vel verkalýðsdeginum á morgun - njótið!

29.4.07
myndataka Kristínar Couch
Kristín bjó sér til fínasta stúdíó í "rauða húsinu" ...hér er ein af myndunum sem hún tók í dag - hún ætlar að mynda meira á morgun. Hún var með flott módel, góðan stílista og allar tilheyrandi ljósmyndagræjur - prófessionalheitin greinilega borguðu sig og árangurinn varð afar skemmtilegur.
...svo hlakkar maður bara til að sjá árangur morgundagsins ;)
Kíkið svo á flickr síðuna hennar til að sjá meira!